Hvernig er hægt að endurnýja föst lyf ?
Rafræn endurnýjun lyfseðla er gerð í gegnum Heilsuvera.is en það er vefsvæði þar sem notandi getur átt í samskiptum við heilbrigðisþjónustuna, m.a. endurnýjað lyf og bókað tíma hjá heilsugæslulækni. Til innskráningar þarf rafræn skilríki.
Sjá nánar: Heilsuvera - mínar heilbrigðisupplýsingar á vef Landlæknis.
-
Eftirritunarskyld lyf eins og sterk verkjalyf má eingöngu endurnýja einn mánaðarskammt í einu og þarf að koma á stöð í eftirlit amk. 1 x í mánuði vegna þessa.
Markmiðið verður að draga úr þeirri lyfjanotkun eins og hægt er.
-
Róandi- eða svefnlyf, má eingöngu endurnýja einn mánaðarskammt í einu og mest þrisvar sinnum.
Eftir það er nauðsynlegt að koma á stofu til læknis ef þörf er á áframhaldandi meðferð.
-
Allir sem nota lyf að staðaldri ættu að koma á stofu til læknis í eftirlit a.m.k. árlega.
-
Mikilvægt er fyrir sjúklinga að verða ekki lyfjalausir og því best að fá lyf endurnýjuð 3-4 dögum áður en síðasti skammtur er búinn.
Símatímar vegna endurnýjunar lyfja
HSN Akureyri: Alla virka daga í síma 432-4603 kl. 9 - 10:30.
HSN Blönduós: Símatími hjúkrunarfræðinga 455-4110 alla virka daga kl. 13:00-14:00
HSN Dalvík: Alla virka daga í síma 432-4400
HSN Fjallabyggð: Alla virka daga í síma 4602100 og 4664050
HSN Húsavík: Símatími hjúkrunarfræðinga 464-0500 alla virka daga kl. 09.00-10.00
HSN Sauðárkrókur: Símatími hjúkrunarfræðinga 432-4203 alla virka daga kl. 08:30-09:30.